Allir fjölmiðlar, sem máli skipta í heiminum, fóru rangt með fréttina af þjóðaratkvæðinu. Létu hjá líða að taka fram, að það snerist um ríkisábyrgð á endurgreiðslu, ekki um endurgreiðslu. Gamli Landsbankinn mun endurgreiða eftir efnum, þótt ríkisábyrgðin hafi verið felld. Fjölmiðlarnir sögðu ekki heldur frá, að meirihluta Íslendinga er ósárt um, að umsókn um Evrópuaðild fokkist upp. Tafir á Evrópuaðild fela ekki í sér hótun. Allar fréttastofur og fjölmiðlar gáfu ranga mynd af stöðunni. Þetta var léleg fréttamennska. Hélt þó Steingrímur J. Sigfússon fund á sunnudaginn með erlendum fjölmiðlum.