Sem yfirmaður fyrirtækjasviðs Íslandsbanka sá Einar Örn Ólafsson um málefni Skeljungs í bankanum. Sá meðal annars um sölu bankans á Skeljungi. Þótti þó of almennilegur við kaupendur og var látinn hætta í bankanum með litlum fyrirvara í síðasta mánuði. Nokkrum vikum síðar kom hann upp úr kafinu sem forstjóri Skeljungs. Dæmigerður vandi við græðgisvæðingu frjálshyggjunnar. Einstaklingar ramba milli fyrirtækja og stofnana í fjármálum, eftirliti og einkagróða. Án þess að nokkur viti, hvar hjarta þeirra slær, hvar hagsmunir þeirra liggja. Enda var Skeljungur greiddur með verðlausum fasteignum.