Alfræðiritið Wikipedia.org segir minnst 245 manns hafa látizt af völdum rafbyssna frá júní 2001 til júní 2007. Alfræðiritið er annarrar skoðunar en útvarpsmaðurinn Kristófer Helgason vopnasali. Hann reynir að selja löggunni drápstækið, segir það meinlaust. Löggan er spennt fyrir morðtólinu. Í mörgum tilvikum hafa rafbyssur áhrif á framgang annarra áhættuþátta. Fólk fær hjartaáfall, taugasjokk, dettur á hættulega hluti og svo framvegis. Löggan reynir að fela þetta, en dómsmálin eru rækilega rakinn í Wikipedia. Lesið þar um ótal nafngreind fórnardýr. Rafbyssurnar eru banvæn vopn.
