Ráðherrar berir að svindli.

Greinar

“Við förum bara eftir reglunum,” væla ráðherrar, þegar þeir eru réttilega sakaðir um að misnota aðstöðu sína í lánakjörum til kaupa á bílum. Þessi svör eru dæmigerð um siðblinduna, sem einkennir ráðamenn þjóðfélagsins.

Það eru nefnilega ráðherrarnir sjálfir, sem hafa sett leikreglurnar. Þeir krunka saman níu um, að sanngjarnt sé, að hver ráðherra fái þriggja milljón króna lán á 19% vöxtum til 10 ára. Enginn óháður aðili fjallar um málið.

Vextir ráðherranna eru nú komnir upp í 22%. Samt eru þeir ekki nema tveir þriðju hlutar þeirra vaxta, sem venjulegir borgarar verða að greiða, geti þeir kríað sér út lán. Og venjulegir borgarar fá í mesta lagi lán til fjögurra ára.

Reglur þær, sem ráðherrarnir hafa sett sjálfum sér, eru hreint svindl. Þær fjalla um fjárhagsleg fríðindi, sem almennir borgarar njóta ekki. Ráðherrarnir hafa því enga vörn í að segjast fara “eftir reglunum”.

Þegar Ólafur Ragnar Grímsson gagnrýndi þetta á þingi á mánudaginn, varð Tómas Árnason fjármálaráðherra svo uppiskroppa með undanbrögð, að hann fór að benda á aðra. Hann sagði, að allt ríkiskerfið væri löðrandi í fríðindum.

Auðvitað er það rétt lýsing á forkastanlegu ástandi. En Tómasi er ekki vörn í svindli á ýmsum stigum ríkisbáknsins. Eftir höfðinu dansa limirnir. Siðvæðingin verður að byrja að ofan. Og hennar hefur enn ekki orðið vart í ríkisstjórninni.

Ekki er síður alvarlegt samsæri embættismanna um að neita þjóðkjörnum fulltrúum um upplýsingar í svindlmáli þessu. Fer þar fremstur í flokki ráðuneytisstjóri fjármála, sem virðist líta á ríkiskassann sem sitt einkamál.

Blaðamenn eru ekki óvanir slíkum viðhorfum embættismanna, sem telja blaðamenn umboðslausa. En skörin er farin að færast upp í bekkinn, þegar alþingi er neitað um upplýsingarnar. En þannig er embættismannaveldið orðið hér á landi.

Ólafur Ragnar Grímsson rauf þagnarbandalagið með því að ráðast á alþingi beint að ráðherrunum og neyða þá til útskýringa. Þeir gáfu að vísu loðin svör og sumpart villandi. En alténd sýndu þeir nekt sína á sviði siðgæðis.

Ef ráðherrar og embættismenn mega framvegis búast við slíkum gusum, er sennilegt, að þeir þori minna að svindla.

Tveir hermangsflokkar.

Hermangsflokkarnir tveir, sem standa að Íslenzkum aðalverktökum, tóku á mánudaginn saman höndum á alþingi um að svæfa tillögu um rannsókn alþingis á starfsemi verktaka á Keflavíkurflugvelli. Sú samstaða segir meira en margar varnarræður.

Allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í neðri deild stóðu sem einn maður að því að vísa frá tillögu um rannsókn af hálfu alþingis, sem þingnefnd hafði samþykkt fyrir sitt leyti.

Einokun Íslenzkra aðalverktaka á framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli hefur sætt svo langvinnri gagnrýni, án þess að stjórnvöld hafi gert neitt í málinu, að full ástæða var til sérstakrar rannsóknar alþingis.

En samt er mikils virði fyrir þjóðina að átta sig á, hversu sterkum tökum hermangið hefur náð á Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum. Þegar peningar gæðinganna eru annars vegar, þá rýkur öll siðvæðing út í veður og vind.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið