Ráðherra stal tugum milljóna

Punktar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir stal tugum milljóna af fé skattborgara í þágu skólans Hraðbrautar. Þetta var einkavinavæðing og pilsfalda-kapítalismi í allri sinni dýrð. Stjórnendur og eigendur skólans greiddu sér 177 milljónir í arð af skólanum og tengdum félögum. Samtals fékk skólinn 192 ofgreiddar milljónir árin 2003-2009. Útilokað er, að einhverjir yfirmenn í ráðuneytinu hafi ekki vitað um þetta. Spillingin er ekki hjá ráðherranum einum, heldur einnig hjá einhverjum kvígildum Sjálfstæðisflokksins í ráðuneytinu. Þetta er það samfélag, sem varaformaður Flokksins bauð þjóðinni á valdaskeiði hennar.