Nú er sól og sumarylur. Reiðhjólin hafa verið dregin ryðguð undan vetrinum, smurð og gerð nothæf að nýju. Í sumar munu margir njóta þess að hjóla í vinnuna, áður en reiðhjólið hverfur aftur undir snjó. Núna er nákvæmlega rétti tíminn til að fá Jan Gehl prófessor í heimsókn. Hann er að kenna arkitektum að breyta Reykjavík úr borg bílsins í borg útilífs og útivistar. Hann er að kenna, hvernig megi tefja svo fyrir bílum, en fólk neyðist til að grípa til reiðhjólsins. Verst er, að prófessor Gehl getur ekki kennt okkur, hvernig reiðhjólaborgin Reykjavík getur lagzt í híði yfir veturinn.
