Schengen-samningurinn hefur kosti og galla. Hann auðveldar okkur að ferðast um Evrópu. Hann er grundvöllur samstarfs á evrópskum grundvelli um leit að glæpamönnum og hryðjuverkamönnum. Um leið hefur frjálsari straumur fólks leitt til aukinna ferða glæpalýðs. Aðild ríkja í Austur-Evrópu að Schengen hefur reynt á þolrifin í innviðum samningsins. Menn vilja af þeim sökum taka aftur upp landamæraeftirlit. Eitt af nokkrum dæmum um, að innviðir Evrópu þurfa að vera í sífelldri aðlögun. Evrópusambandið verður ekki til á frægum samningum á borð við Schengen. Heldur á sífelldri lagfæringu regluverksins.