Pilsfaldakapítalistinn

Punktar

Guðmundur Gunnarsson hjá Farice er undarlegur maður. Sagði í sjónvarpinu um daginn, að níu milljarða króna skuldir fyrirtækisins væru bara skítur á priki. Með því að lækka gjaldskrána gæti fyrirtækið grætt upp í skuldirnar. Stórfyrirtækin mundu koma í kippum með gagnaver til Íslands, ef landið væri samkeppnishæft í verði gagnaflutninga. Hver annar forstjóri mundi drífa í að láta drauma sína rætast. En ekki Guðmundur. Hann tuðar bara um að verðskrá sín sé of há. Á greinilega við, að ríkið eigi að bjarga málinu fyrir sig. Einn þeirra, sem lengi hafa gengið undir nafninu: Pilsfaldakapítalistar.