Pálmi í Fons segist sæta einelti. Þorir ekki í sundlaugar. Segist hafa gert siðferðileg mistök, en ekkert lagalega rangt. Alþingi götunnar hafi dæmt sig fyrirfram. Því er til að svara, að almenningsálitið starfar á öðru sviði en lagatæknar og dómstólar. Það ákveður, að Pálmi í Fons sé siðleysingi, refsar honum í samræmi við það. Með útskúfun og fyrirlitningu. Það veit, að Pálmi í Fons olli skattgreiðendum tugmilljarða tjóni með ósvífinni græðgi, sem hann telur löglega. Samkvæmt nýju grátviðtali DV í stíl Jóhannesar í Bónus hefur Pálmi Haraldsson ekkert lært af hruninu. Er í sömu afneitun og Jóhannes.
