Palestína er 2400 ára

Punktar

Ruglið úr Newt Gingrich þekkja allir, sem fylgjast með bandarískri pólitík. Bull hans um Palestínu kemur ekki á óvart. Palestína sem heiti kemur fyrst fyrir hjá sagnfræðingnum Heródótusi rúmlega fjórum öldum fyrir Krist. Hefur verið ítrekað allar aldir síðan. Sem ríki er það einni öld eldri en Ísrael, stofnað í uppreisn Palestínumanna gegn Tyrkjum á 19. öld. Engu máli skiptir, þótt Tyrkir hafi kallað landið annað meðan þeir réðu. Ekki heldur, þótt Palestínumenn hafi eins og aðrir hirðingjar oft kallað sig Araba. Það gera múslimar um allan Arabíuskaga og víðar um Miðausturlönd. Sjáið Wikipedia.