Óvinur þjóðarinnar

Punktar

Búnaðarþing ályktar, að ríkinu beri að halda áfram að styðja landbúnaðinn eins og hver önnur félagsmálastofnun. Raunar beri ríkinu að auka styrki til landbúnaðarins og vinnslustöðva hans. Einnig sé brýnt að viðhalda tollvernd til íslenzka landbúnaðarins og vinnslustöðva hans. Búnaðarþing hafnar öllu viðskiptafrelsi, þótt landbúnaðurinn flytji út vörur á kostnað ríkisins. Það hafnar allri samkeppni, hvaða nafni sem hún nefnist. Búnaðarþing vill ekki ræða nýjar leiðir í samskiptum þjóðar og landbúnaðar. Það vill alls engar breytingar. Búnaðarþing er áreiðanlega einn helzti óvinur þjóðarinnar.