Óvenjulegt uppátæki formanns

Punktar

“Formaður flokksins stígur það skref, sem er mjög óvenjulegt, tel ég, fyrir foringja í stjórnarandstöðu, að standa bara nákvæmlega með því sem hann telur rétt fyrir þjóðina.” Málsgrein áratugarins átti Ólöf Nordal í morgun um stuðning Bjarna Benediktssonar við IceSave IV. Varaformaðurinn telur stöðu með þjóðinni vera óvenjulega. Lýsir vel hugarheimi fulltrúa Flokksins. Jafnframt játaði Ólöf, að Flokkurinn væri óvanur að vera í stjórnarandstöðu. Skýrir væntanlega, hvers vegna þingflokkurinn breytti umræðum á Alþingi í “hálftíma hálfvitanna”. Vonandi fetar þingflokkurinn í fótspor formannsins.