Áratugum saman fjölmenntu hægri sinnaðir þingmenn, blaðamenn og álitsgjafar í boðsferðir á vegum Atlantshafsbandalagsins. Aðallega til Bruxelles, en einnig til Norfolk og fleiri merkilegra staða. Aldrei man ég eftir, að þeir kvörtuðu yfir ferðunum og lúxus þeirra. Þeir ganga hins vegar af göflunum, þegar Evrópusambandið býður til slíkrar ferðar til Bruxelles. Þeim finnst hneykslanlegt, að sambandið geri vel við nokkra stuðningsmenn sína. Vonandi hafa boðsmenn EBE ekki rekizt á boðsmenn NATO í borginni. Þeir hefðu kannski farið að metast um, hvaða hótel og matarhús í borginni séu fínni en önnur.
