Ótrúverðugir lífeyrissjóðir

Punktar

Stjórnendur lífeyrissjóðanna njóta ekki trausts. Þeir, sem eiga peningana þar, geta ekki fylgt þeirri skoðun eftir. Verkalýðsrekendur og auðmenn sitja í stjórnum sjóðanna án atbeina sjóðfélaga. Þetta er sjúkt kerfi, sem leiddi til margskonar óráðsíu fyrir hrunið. Þar töpuðu lífeyrissjóðirnir hundruðum milljarða króna af fé sjóðfélaga. Sjóðirnir hafa reglur, sem sumir fóru ekki eftir. En hampa núna, þegar leitað er til þeirra um lánsfé. Nota reglur, þegar þeim þóknast, annars ekki. Hlægilegt er, að verkalýðsrekandi reiðist, þegar gert er grín að sjúku lífeyriskerfi, sem nýtur ekki trausts notenda.