Óþarft er að fá martröð

Punktar

“Kóngurinn er dauður. Lifi kóngurinn.” Þannig var hrópað í Evrópu í gamla daga, þegar skipt var um kóng. Hér eru þeir ekki drepnir við slík tækifæri, heldur sendir norður í Svörtuloft. Hafa þar alltaf verið þægir og hljóðir. Allir nema Davíð. Ekki er samt um það að ræða hér frekar en annars staðar, að dauður kóngur snúi aftur. Hann getur gengið aftur, jafnvel eldspúandi, en hann kemur ekki aftur. Stofnunin, sem ræður og rekur Íslandskónga, lætur sér ekki detta í huga að vekja upp látna kónga. Flokkurinn fylgir blint nýjum foringja sínum, er hann hefur verið vígður. Óþarft er að fá martröð.