Ósyndir lífeyrisstjórar

Punktar

Furðulegt er tíu milljarða tap lífeyrissjóða á hlutabréfum í Exista í átta mánuði, frá júlí 2007 til febrúar 2008. Þetta eru Gildi, Lífeyrissjóður verzlunarmanna og Lífeyrissjóðir í Bankastræti 7. Svo virðist sem þessir sjóðir hafi verið sofandi í september-október. Þegar aðrir voru að vakna til vitundar um breytta stöðu hlutafjár. Héldu áfram að kaupa pappíra, sem aðrir voru farnir að forðast. Spurning er, hvort þessir sjóðir hafi burði til að standa í fjárhættuspili. Stjórnendur þeirra léku sér með fé annarra í djúpu lauginni. Þar sem aðeins eiga að vera þeir, sem eru vel syndir.