Össur: Davíð eineltir Geir

Punktar

Við skulum gefa Össuri Skarphéðinssyni ráðherra orðið. Hann er að tala um Davíð Oddsson: “Hann leggur forystu Sjálfstæðisflokksins í einelti. Hann virðist nota hvert tækifæri til að grafa undan henni. Mér sýnist hann beinlínis vera að reyna að sundra flokknum. Davíð talar með þeim hætti, sem maður í hans stöðu getur ekki leyft sér. Og þó hann hafi vafalaust marga kosti og geti gegnt margvíslegum stöðum, þá hefur hann sýnt það, að hann er ekki hæfur til að þess að fara með það vald, sem felst í því að vera seðlabankastjóri.”