Ósnertanleg valdastétt

Punktar

Vikan hefur verið skrautleg. Upp komst um laxveiði Guðlaugs Þ. Þórðarsonar, Björns Inga Hrafnssonar og Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á kostnað hagsmuna. Þorgerður Katrín stökk tvisvar í sömu viku til Peking og lét okkur borga fjórar milljónir króna. Guðni Ágústsson falsaði þingræður, svo að þær líti betur út á pappír en í veruleikanum. Samgöngunefnd Alþingis gisti á hóteli í Reykjavík, þótt allir nefndarmenn nema einn búi í borginni. Allir flokkar stóðu að þeirri spillingu. Er hin pólitíska valdastétt gengin af göflunum eða þykist hún vera ósnertanleg? Síðari skýringin er greinilega sú rétta.