Meirihluti númer fjögur í Reykjavík er veikari en meirihluti númer eitt var fyrir ári. Þá hafði Björn Ingi Hrafnsson stuðning varamannsins í borginni. En nú stendur Framsókn ekki einhuga að baki nýja meirihlutanum. Marsibil Sæmundardóttir varafulltrúi styður ekki stjórnarsamstarf Óskars Bergssonar. Að því leyti líkist meirihluti númer fjögur meirihluta númer þrjú. Þá hafði Ólafur F. Magnússon ekki stuðning síns varamanns, Margrétar Sverrisdóttur. Þar á ofan hefur nýi meirihlutinn minni stuðning borgarbúa en nokkur hinna þriggja meirihluta ársins. Óskar er hriplekt varadekk eins og Ólafur var.
