Ósjálfbært lífeyriskerfi

Punktar

Lífeyriskerfi opinberra starfsmanna er ósjálfbært. Endar fyrr eða síðar með þeirri skelfingu, að ríkið getur ekki staðið við lífeyrisskuldbindingarnar. Ólafur Margeirsson hagfræðingur reiknaði, að ríkissjóður þurfi frá 2022 að greiða tuttugu milljarða á ári í tap kerfisins. Jafngildir hálfu IceSave á hverju ári. Þetta er ekki nýr vandi. Hver ríkisstjórnin á fætur annarri hefur látið hann liggja milli hluta. Lokar augunum fyrir, að opinberir starfsmenn ættu að leggja fram sams konar upphæðir af launum sínum og aðrir borgarar. Forréttindi opinberra eru ekki sjálfbær og þau ber að afnema.