Orsök hrunsins er ein

Punktar

Því meiri upplýsingar, sem koma fram, þeim mun ljósari verður ábyrgð Davíðs Oddssonar á hruninu. Samkvæmt lögum máttu bankarnir aðeins skulda 10% eigna sinna í erlendri mynt. Það er að segja 100 milljarða. Þegar bankarnir fóru á hausinn 2008, skulduðu þeir 28 sinnum meira eða 2800 milljarða. Það stafaði af, að seðlabankastjóri leyfði þeim að brjóta lög. Í stað þess að gera þá gjaldþrota 2006, hélt Davíð þeim í öndunarvél í tvö ár. Gaf út ástarbréf og hagaði sér eins og hömlulaus vitfirringur. Því varð hrun okkar margfalt, margfalt, margfalt stærra en það þurfti að vera. Vegna Davíðs Oddssonar.