Orsakir fylgishrunsins

Punktar

Minnkandi fylgi Sjálfstæðisflokksins í kosningabaráttunni stafar einkum af fréttum af siðleysi flokksins og þingmanna hans. Fjármögnun þeirra er vændi, sem jaðrar við mútur af hálfu útrásarvíkinga og útrásarbanka. Aðeins toppur þess ísjaka hefur komið í ljós, hinu er haldið leyndu fram yfir kosningar. Öðrum þræði stafar rýrnunin af undarlegri kosningabaráttu flokksins. Hún hefur einkennzt af ódýrum yfirboðum og neikvæðum hatursauglýsingum undir ýmsum dulnefnum flokksins. Kjósendur sætta sig ekki lengur við froðuna og skítinn. Þeir hafa yfirgefið flokkinn og þingmannsefni hans að sinni.