Í Samfylkingunni misskilja menn vanda ríkisstjórnarinnar. Hann felst ekki í, að fyrrverandi ráðherra og nokkrir þingmenn séu sammála meirihluta kjósenda um IceSave og Evrópusambandið. Felst ekki heldur í, að vinstri grænir vilji fara sér hægt í sameiningu ráðuneyta. Vandinn felst í frammistöðu ráðherra Samfylkingarinnar og svokallaðra fagráðherra. Gylfi Magnússon hefur hleypt nýju bönkunum í sama, gamla spillingarfenið. Og Árni Páll Árnason hefur ekki sýnt nein tilþrif við að sætta fólk við skuldafen þess. Vandinn felst ekki í órólegum vinstri grænum, heldur í vangetu nokkurra afar rólegra ráðherra.
