Einn af mörgum opinberum sjóðum, sem er gjaldþrota um þessar mundir, er Vegasjóður. Annars vegar hefur verðbólga undanfarinna missera étið upp framkvæmdafé hans. Og hins vegar hefur álagið á vegum landsins aukizt svo mjög, að kleppsvinna að viðhaldi ónýtra vega er orðin meiri háttar peningahít hjá Vegasjóði.
Alþingi hefur nú samþykkt hækkun á benzíni, sem á öll að renna beint í Vegasjóð. Þessi hækkun er mjög tilfinnanleg fyrir bíleigendur. Hækkun úr 36 í 44 krónur eykur rekstrarkostnað algengrar tegundar bifreiða um 6,5%. Þar við bætast svo aðrar hækkanir, einkum vegna gengislækkunarinnar,svo að búast má við, að benzínið fari fljótlega upp í 50 krónur.
Þessi benzínhækkun bætir hag Vegasjóðs verulega. En hann er svo illa stæður, að þetta nægir engan veginn til að ná endum saman. Þrátt fyrir benzínhækkunina verður að skera áætlaðar vegaframkvæmdir þessa árs niður um 1100 milljónir króna og næsta árs um 1300 milljónir króna.
Þessi niðurskurður er ekki auðveldur, en nauðsynlegur eins og-fjármál þjóðarinnar eru á vegi stödd um þessar mundir. Næstu fjárlög ríkisins hljóta að verða mikil sparnaðarfjárlög með miklum niðurskurði á mörgum sviðum. Það verður nauðsynlegt til að koma fjárhag ríkisins á réttan kjöl án þess að ofskatta þjóðina. Þessi fjárhagslega endurreisn hlýtur í bili að koma niður á vegagerð eins og öðrum framkvæmdum hins opinbera. ,
Í þessu sambandi er einnig rétt að líta á þá staðreynd, að einungis hluti benzíngjalda rennur til vegagerðar. Bíleigendur hafa löngum bent á, hve lítill hluti af álögum á bíla og bílarekstur rennur til endurbóta á vegakerfinu. Ríkið tekur óhæfilega mikinn skammt af þessum álögum til annarra nota en vegagerðar.
Það hlýtur að koma til álita í haust við gerð fjárlagafrumvarps að stíga skref í átt til leiðréttingar á þessu misræmi. Bíleigendur mundu bera byrðar sínar með minni ólund, ef þeir sjá, að vaxandi hluti þessara byrða er notaður til að bæta vegina, sem þeir verða að aka
Þetta mál er ákaflega erfitt í framkvæmd. Síaukið fjármagn fer í ofaníburð ónýtra vega án þess að nokkur varanlegur árangur náist vegna hins mikla umferðarþunga. Varanleg vegagerð er hins vegar svo dýr, að fjármunir Vegasjóðs verða að skotsilfri í þeim samanburði.
Við þurfum að fá vegi með varanlegu slitlagi hringinn kringum landið og á helztu hliðarvegi frá hringveginum. Kostnaðurinn við slitlagið mundi smám saman borga sig upp í ódýrari rekstri samgangna á Íslandi. En peningana vantar. Þrátt fyrir benzínhækkunina verður ekki unnt að ráðast í neina umtalsverða vegagerð af þessu tagi á næsta ári.
Eina hugsanlega lausnin á þessu ófremdarástandi virðist vera sú að leita á næstu árum eftir erlendu lánsfé til stórframkvæmda í varanlegri vegagerð, en slíkt lánsfé liggur því miður ekki á lausu eins og þjóðarhag er nú komið. Ef til kæmi, yrði þetta lánsfé að endurgreiðast af gjöldum á umferðina í landinu. Og þá hljóta þau gjöld að hækka enn að marki, auk þess sem ríkissjóður verður þá að sætta sig við að hætta að taka hluta af þessum gjöldum til annarra þarfa.
Jónas Kristjánsson
Vísir