Fortíð Egils Einarssonar fer ekkert frá honum. Þótt hann verði sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot, hangir fortíðin samt. Ógeðstal hans opinbert um nauðganir hverfur ekki bara. Friðrik Eysteinsson markaðsfræðingur vanmetur fortíðina. Egill er einfaldlega ónýt markaðsvara. Þeir, sem hafa fjárfest hundrað milljónir króna í honum, eru í vondum málum. Ritstjóri og útgefandi símaskrárinnar eru orðnir að fíflum. Enn frekar samt markaðsmenn 365-miðla. Þeir vissu um fortíðina og hafa áður lent í vandræðum með hana. Samt varð gróðafíknin sterkari en heilbrigð dómgreind. “Fyrirmynd æskunnar” var ónýt.