Ólíkar stærðir talna

Punktar

Sumir andstæðingar samkomulags um IceSave IV tala um það eins og herfjötur á þjóðinni næstu áratugi. Sá herfjötur stafar af framlagi ríkisins til banka, sparisjóða, fjármálastofnana og einkum Seðlabankans. Samtals nemur sá fjötur hundruðum milljarða, líklega 600 milljörðum. Andstæðingar samkomulagsins reka engan áróður gegn slíkum upphæðum. Hamast hins vegar gegn samkomulagi um IceSave IV, sem er minna en árlegar vaxtatekjur Íslandsbanka. Ætla mætti af umræðunni, að IceSave ríði þjóðinni að fullu. Og ætla mætti, að greiðslur til Seðlabankans og annarra fjármálastofnana séu bara skiptimynt milli vina.