Ólafur Jóhann lýsir Hannesi

Punktar

Ólafur Jóhann Ólafsson lýsir Hannesi Smárasyni í Mogga: “Mjög aggressívir fjármálamenn komu inn í þennan geira og verklag þeirra var kannski ekki það ákjósanlegasta miðað við aðstæður. Síðan blandaðist pólitík saman við og úr þessu varð sprengja. Ég held að menn hafi gert hluti í fljótfærni og eftir það komst málið í hnút sem hefur hingað til reynst erfitt að leysa. Einhverjir þurfa að toga í spottann til að leysa hnútinn en sumir hafa kannski forðast það því óneitanlega hafa þeir sem hafa komið nálægt málinu lent í ýmiss konar kröggum.” Þannig var REI-máli Orkuveitunnar klúðrað.