Allir íslenzku fjölmiðlarnir nema Vísir segja, að kvikmyndirnar af árekstrum brezkra herskipa og íslenzkra varðskipa sýni, að brezku skipin hafi siglt á hin íslenzku. Þessi óskhyggja er ekki í nægilegu samræmi við raunveruleikann. Það, sem brezku herskipin gera, er að sigla fyrir íslenzku varðskipin og valda þar með árekstri.
Sök brezku herskipanna er ekki minni fyrir það, að þau sigla ekki beinlínis á íslenzku varðskipin. Tilgangurinn er hinn sami, hvort sem um
beina eða óbeina ásiglingu er að ræða. Við gerum ekki greinarmun á beinni og óbeinni ásiglingu, þegar við segjum upp stjórnmálasambandi við Bretland. Við höfum fengið sannanir fyrir því, að brezku herskipin valda árekstrunum, og það nægir okkur.
Við þurfum því ekki að hagræða sannleikanum og segja Bretana hafa siglt á. Sá, sem hefur góðan málstað, þarf ekki á slíku að halda. Ýktar fullyrðingar um ásiglingar herskipanna gefa brezku stjórninni tækifæri til að halda uppi þeirri einföldu og auðveldu vörn í málinu, að kvikmyndirnar sýni einmitt hið gagnstæða, að varðskipin sigli á herskipin.
Við skulum því hætta að láta hlaupa með okkur í gönur og halda okkur eingöngu við það, sem kvikmyndirnar sanna, að brezku skipin valda árekstrunum, þótt þau sigli ekki beinlínis á. Sannleikurinn er nefnilega sagna beztur.
Jónas Kristjánsson
Vísir