Óhæfur ríkislögreglustjóri

Punktar

Haraldur Johannessen er gersamlega óhæfur ríkislögreglustjóri. Hann sukkaði með ríkisfé, sóaði hundruðum milljóna í málverkafölsunarmál og milljarði í Baugsmál. Án þess að nokkuð kæmi út úr fjáraustrinum og axarsköftunum. Hann hótaði manni lífláti og lét hverfa vottaðar vitnaleiðslur um það. Þannig hefur hann svívirt landslög. Byggir upp einkaher Sjálfstæðisflokksins á ríkiskostnað. Er beinlínis hættulegur íslenzka lýðveldinu. Var frá upphafi borinn um ríkiskerfið á öxlum Sjálfstæðisflokksins. Ef nothæf ríkisstjórn kemst til valda, ber henni umsvifalaust að sparka Haraldi Johannessen.