Óhæfir fjórmenningar

Punktar

Elín Jónsdóttir er forstjóri Bankasýslu ríkisins. Þorsteinn Þorsteinsson, Sonja María Hreiðarsdóttir og Sigurður B. Stefánsson skipa stjórn hennar. Undir stjórn þeirra hafa bankarnir haldið áfram á sömu óheillabraut og þeir voru á fyrir hrun. Þeim er enn stjórnað af firrtum bófum, sem passa hagsmuni fjárglæframanna og kvótagreifa, einkavina og gæludýra. Í skjóli margfrægrar bankaleyndar. En níðast á venjulegu fólki sem mest þeir mega. Bankarnir ganga fram af okkur. Þeir verða kveikjan, sem fellir ríkisstjórnina. Sá, sem skipaði óhæfa fjórmenninga Bankasýslunnar, heitir Steingrímur J. Sigfússon.