Óhæfir braskarar lífeyris

Punktar

Nokkrir forustumenn stærstu lífeyrissjóðanna ætluðu í samstarfi við Sigurð Einarsson og fleiri fjárglæframenn að eignast Kaupþing. Það tókst ekki, sem betur fer fyrir Kaupþing og lífeyrissjóðina. Þeir hafa óðfluga verið að færast frá upprunalegum tilgangi sínum. Þeir hafa verið of áhættusæknir sem lífeyrissjóðir. Og þeim er stjórnað af hópi braskara, sem hugsar of lítið um hagsmuni sjóðfélaga. Það mun koma í ljós, þegar lífeyrir verður greiddur út eftir áramót. Tilboð lífeyrissjóðanna í Kaupþing á að vera tilefni þess, að skipta um óhæfa stýrimenn og stjórnarhætti sjóða almennings í landinu.