Óháð héraðsblöð

Greinar

Frjálsum og óháðum landsbyggðarblööum hefur vaxið fiskur um hrygg á undanförnum árum. Suðurnesjatíðindi hafa náð öruggri fótfestu á Suðurnesjum og til sögunnar hafa komið blöð á borð við Vestfirzka fréttablaðið á Ísafirði, Umbrot á Akranesi og Dagskrá í Eyjum.

Þessi blöð eru aðstandendum sínum yfirleitt til sóma. Þau bera flest af flokkspólitísku blöðunum í þessum byggðarlögum. Í stað flokkspólitísks hnútukasts reyna þau að gera misjöfnum sjónarmiðum jafnhátt undir höfði. Og fréttaflutningur þeirra er yfirleitt meiri og betri en flokksblaðanna.

Leiðarar flokkspólitísku blaðanna eru yfirleitt efnislega og stílfræðilega lítið annað en uppsuða úr ömurlegu karpi móðurskipanna í Reykjavík, svo sem menn fá að heyra í útvarpinu á mánudögum. Þá fá menn hins vegar ekki að heyra leiðara frjálsu og óháðu landsbyggðarblaðanna, sem eiga þó fremur erindi til fólks en uppsuðan í flokkspólitísku blöðunum.

Stjórnmálaflokkarnir reyna að breiða yfir misnotkun sína á ríkisfjölmiðlunum með því m.a. að heimila lestur úr leiðurum Dagblaðsins eins og flokkspólitísku dagblaðanna. Ef réttlætiskennd lægi þar að baki, mundi lestur úr leiðurum óháðu landsbyggðarblaðanna einnig vera leyfður.

Frjáls og óháð blöð um allt land væru til þess fallin að rjúfa þá einokun, sem stjórnmálaflokkarnir hafa hingað til haft á fjölmiðlun heima í héraði. Því meira sem slík blöð eflast, þeim mun traustara verður lýðræðið í landinu.

Í þessu skipta fréttirnar einna mestu. Menn eru vanir einhliða fréttaflutningi um málefni byggðarlagsins í flokkspólitísku blöðunum. Þótt hinar einhliða myndir allra flokksblaðanna séu lagðar saman, kemur ekki út nein alhliða mynd. Óháð fréttamennska gefur sannari mynd af gangi mála í byggðarlaginu.

Skoðanaskiptin eru líka mikilvæg. Menn eru vanir einhliða áróðri í flokkspólitísku blöðunum. Samanlagt gefa þessar áróðursgreinar ekki alhliða mynd, enda yfirleitt skrifaðar af flokkssauðum af ýmsu tagi. Slíkar greinar eiga hins vegar heima innan um greinar óháðra höfunda í frjálsum héraðsblöðum.

Áhugamenn um eflingu lýðræðis ættu hver á sínum stað að gera sitt bezta til að auka útbreiðslu og áhrif hinna frjálsu og óháðu landsbyggðarblaða. Þessi blöð njóta ekki ríkisstyrks eins og flokkspólitísku landsbyggðarblöðin. Og þau njóta ekki auglýsingar leiðaralestrar útvarpsins eins og flokkspólitísku blöðin. Þau lifa eingöngu á vinsældum lesenda og auglýsenda.

Enn vantar frjáls og óháð landsbyggðarblöð í stóra landshluta. Ekkert slíkt blað er enn gefið út á Akur:eyri, þótt þar ætti að vera stærri markaður en víðast annars staðar. Einnig vantar blöð fyrir Austurland, Suðurland og Norðurland vestra.

Starfsemi nýrra og nýlegra blaða at þessu tagi á Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum og í Vestmannaeyjum gefur þó vonir um frekara framhald.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið