Flestir hættulegir glæpamenn ganga ekki lausir, þótt þeir hafi ekki verið dæmdir. Sitja í margframlengdu gæzluvarðhaldi, þótt sakir hafi ekki verið sannaðar frá sjónarhóli lagatækni. Gildir hins vegar ekki um hættulegustu bófa landsins, fjárglæframennina. Engir hafa valdið þjóðinni meira tjóni og einstaklingum meiri hörmungum en mafíur fjárglæframanna. Þeir sitja samt ekki í gæzluvarðhaldi eins og þeir mundu gera í Bandaríkjunum. Þeir ganga lausir, þótt þeir hafi komið undan tugum og kanski hundruðum milljarða. Og skemmta sér við að ógna fátækum fréttamönnum með stefnum fyrir meiðyrði.