Ögmundur skúrar ekki

Punktar

Hitti varla nokkurn, sem ekki er reiður yfir getuleysi Alþingis við að gera upp pólitískan þátt hrunsins. Þeir vilja fá að vita nákvæmlega, á hvaða hátt pólitíkusar komu að ferlinu. Hver gerði hvað á hverjum degi og gerði ekki hvað á hverjum degi. Hver sagði hverjum hvað á hverjum degi og sagði ekki hvað við hvern á hverjum degi. Þetta er enn í þoku. Margir ætluðust til að henni yrði sópað burt í vitnaleiðslum. Ferlið skiptir fólk meiru en útkoma Landsdóms. Réttilega er Ögmundi Jónassyni mest kennt um svik Alþingis, enda var hann kosinn til að skúra. Útskýringar hans falla í mjög grýttan jarðveg.