Og hann var kominn heim

Punktar

Hef lesið mikið af ferðabókum og sjálfur skrifað tíu. Mest hef ég lesið um Feneyjar, sem löngum hafa verið mitt uppáhald. Ernest Hemingway skrifaði skáldsöguna “Across the River and Into the Trees” um bandarískan hermann í þessari bílalausu borg. Þar segir á einum stað: “Then he was pulling open the door of Harry’s Bar and was inside and had made it again, and was at home.” Þetta er tilfinning, sem oft fylgir því að koma aftur á kæran stað, kaffihús eða veitingahús. Það er sú tilfinning eftir þreytandi ferðaskark að vera loksins kominn “heim”, þótt í útlöndum sé. Hemingway er stílmeistari.