Ofstækismaður leikur lausum hala

Punktar

Ábyrgðarhluti er að velja slíkan ofstækismann sem Gunnar Helga Hálfdánarson sem formann bankaráðs Landsbankans. Starfsmenn bankans eru tvöfalt fleiri en þarf. Er enn mannaður eins og hann sé í geðveikri útrás. Offramboð er af bankamönnum og þeir þurfa aldeilis enga bónusa. Einfalt samkeppnislögmál. Svo er þetta ríkisbanki, sem á að ganga á undan öðrum með sómasamlegt fordæmi. Sannleiksskýrslan benti á hvatakerfi bankanna sem eina af orsökum hrunsins. Hvatakerfi bankanna var og verður stórhættulegt. Það er hrein vitfirring að ráða sértrúar-ofstækisfólk í Bankasýslu ríkisins og bankaráð.