Ofsatrú á lánsfé

Punktar

Erlent fjármagn vill auðvitað ekki koma til Íslands. Það er ekkert nýtt, við lifðum við það fyrir örfáum áratugum. Enginn viti borinn maður vill festa fé sitt hér norður í rassi. Nema hann fái frítt rafmagn eins og dæmin sýna. Við verðum að sætta okkur við fjármagn, sem verður til hér innanlands og passa, að útflutningur borgi innflutning. Miklar innistæður eru í bönkunum, þrátt fyrir kreppu. Þurfum ekki ofurlán Alþjóða gjaldeyrissjóðs og Norðurlanda til að efla gjaldeyrissjóð og verja krónugengi. Hlægilegt er að efla sjóð með skuldum. En þannig er fáránleg hagfræði nútímans. Hún er með öllu verðlaus.