Ofbeldi óvættarins

Punktar

Ný þýðing hefur ekki lagað Gamla testamentið. Söguhetjan er Jahve, karlkyns óvættur, sem lofar hópnauðganir á börnum (Lot) og fjöldamorð (Móses). Þessi ofbeldistryllir er lítt mildaður af félagslegum rétttrúnaði nýs útgáfutíma, á Íslandi árið 2007. Karlremban, barna- og kvennahatrið leynir sér ekki. Ofvaxið mínum skilningi er, að það sé grunnur kristni. Ég svitna, þegar ofsatrúarmenn þylja það með réttum númerum á versum, telja það einnig hafa spásagnargildi. Stundum lít ég í Gamla testamentið, en legg það frá mér, því ég þoli illa ofbeldi. Munkarnir, sem skálduðu það, voru kexruglaðir.