Svigrúm borgaralegs andófs hefur minnkað. Guðmundur jaki gat lokað vikum saman vegum til Reykjavíkur til að gæta hagsmuna verkafólks. Það var fyrir mörgum áratugum. Nú er löggan farin að leggja til atlögu við borgaralega óhlýðni. Óeirðirnar í gær voru lögregluóeirðir, skipulagðar af öfgaöflum kerfisins. Að baki sjáum við svip Björns Bjarnasonar ráðherra og Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra. Smám saman er verið að breyta löggunni úr vini litla mannsins í vopnaðar sveitir til að gæta hagsmuna Stóra Bróður. Skólafólk í nazistafötum á Norðlingaholti var frábær áminning, heil Hitler.
