Þegar nýir ritstjórar hafa að undanförnu verið að hlaupa út og inn á Vísi, hafa þeir jafnan gefið hástemmdar yfirlýsingar um afskiptaleysi eigenda blaðsins af skrifum þess. Þeir flytja jafnvel þessar vitnanir í farangrinum, þegar þeir hefja störf við blaðið, og láta þær birtast strax.
Þetta er ekki nema eðlilegt í ljósi þess, að ekki er liðið hei lt ár síðan meirihluti ritstjórnar Vísis gekk af blaðinu einmitt vegna margumtalaðrar afskiptasemi eigenda blaðsins. Óskhuggjuna verður að endurtaka nógu oft, svo að hinar sögulegu staðreyndir geti gleymzt.
Jónas Kristjánsson
Dagblaðið