Ný og betri flugfélög.

Greinar

Fargjaldastríð flugfélaga er svo langt gengið, að nú ferðast menn umhverfis hnöttinn, án sérstakra kvaða um fyrirframgreiðslu, millilendingar, ferðatíma og biðlista, fyrir 385 sterlingspund. Það er sama verð og héðan til London!

Hin lágu verð fylgja frjálsri samkeppni, sem er að leysa af hólmi fargjaldasamsæri Alþjóðasambands flugfélaga. Þessi samkeppni er upprunnin í Bandaríkjunum, fer nú sigurför um heiminn og nær síðast en ekki sízt til Evrópu.

Bandarísk flugfélög hafa alltaf verið betur rekin en evrópsk. Þau ná tvöfalt meiri farþegakílómetrafjölda á hvern starfsmann. Meðan Lufthansa hefur 687 þúsund slíka kílómetra, hefur Pan American 1.506.

En hinn tiltölulega góði rekstur hinna gamalgrónu bandarísku flugfélaga dugir þeim ekki lengur, síðan Carter Bandaríkjaforseti kom á samkeppni í innanlandsflugi og Sir Freddie Laker knúði fram samkeppni í Atlantshafsflugi.

Pan American hefur neyðzt til að selja skýjakljúf sinn í New York og hótelhringinn Intercontinental. Braniff og Eastern eru á svipuðu undanhaldi. Sömu sögu er að segja af fleiri gömlum, feitum og ríkum flugfélögum.

Í staðinn eru þar vestra að rísa upp ung og mögur félög, sem ná enn meiri farþegakílómetrafjölda á hvern starfsmann en bandarísku risarnir. Þessi félög þenjast út og skila hagnaði ár eftir ár, þrátt fyrir lækkuð fargjöld.

Eitt dæmið er Air Florida, þar sem við stjórnvölinn er Timoner, hinn bandaríski Laker. Hann hefur náð svipuðum árangri og Freddie hefur náð.

Eins og Laker notast Timoner við mjög einfalt sölu- og afgreiðslukerfi. Hann veitir og starfsfólki hlutdeild í hagnaði, enda er það velviljað fyrirtækinu og hleypur eftir þörfum í hvers annars störf. Þá notar hann sparneytnustu flugvélar.

Air Florida er aðeins níu ára og fór fyrst að vaxa fyrir alvöru árið 1978, þegar Carter kom á samkeppninni. Það hefur jafnan skilað hagnaði, einnig í fyrra, alveg eins og Laker. Og það mun áfram blómstra á lágu fargjöldunum.

Þetta er ekki síðasta skrefið vestanhafs. Risið er fyrirtækið Peoples Express, sem fer nýjar leiðir. Það sérhæfir sig í leiðum, sem öðrum hefur ekki dottið í hug, svona rétt eins og hér væri flogið milli Ísafjarðar og Húsavíkur.

Peoples Express notar Newark flugvöll, sem er bezti, minnst notaði og nálægasti flugvöllur New York. Það hefur enga söludeild, heldur selur farmiða um borð í flugvélunum, alveg eins og þær væru langferðabílar.

Peoples Express hefur ekki heldur neina farangursdeild. Í staðinn eru sæti tekin brott, svo að farþegar geti haft farangurinn við hlið sér. Þeir spara tíma, hindra töskutap og eru ánægðir með fyrirkomulagið.

Það eru flugfélög af tagi Air Florida og Peoples Express, sem munu erfa ríki bandarískra flugmála, alveg eins og Sir Freddie Laker er nú að gera evrópska einokunarsinna gráhærða. Þessi félög hafa nefnilega reksturinn í lagi.

Af þessu getum við lært, að einokun í áætlunarflugi innanlands og til útlanda er hvorki farþegum né flugmálum til góðs. Með samkeppni koma ný og betri, straumlínulagaðri og sparneytnari flugfélög framtíðarinnar, – líka hér.

Jónas Kristjánsson

Dagblaðið