Innri endurskoðun bankanna byrjar skelfilega. Þrátt fyrir snakk Björgvins Sigurðssonar ráðherra um ábyrga endurskoðun. Engin treystir endurskoðun nema hún sé af hálfu óháðs og utanaðkomandi aðila. Því búast má við, að skítur finnist víða. Fyrrverandi innri endurskoðendur bankanna eru komnir í skilanefndir þeirra. Fyrrum yfirmaður IceSave er orðinn innri endurskoðandi bankans, Brynjólfur Helgason. Því er ljóst, að ekki er stefnt að neinum uppljóstrunum. Líklega er það fjármálaeftirlitið, sem stjórnar vitleysunni. Hún vekur upp fyrri röksemdir um, að eftirlitið sé óhæft til allra verka.
