Nokkur góð ráð fyrir auðmenn

Punktar

Skildu milljón króna pelsinn eftir heima, er þú ferð á Austurvöll að heimta afskrift lána þinna. Skildu tíumilljón króna jeppann eftir, þegar þú ferð í Borgartún að flauta fyrir utan Arion. Ef þú kemst í fjölmiðlaviðtal, skaltu ekki segja, að þú borgir 180 þúsund krónur fyrir ilmbaðstofu í World Class. Annars minnirðu á milljón króna menn í InDefence. Eða milljarðaerfingjana, stjórnarandstöðu-foringjana. Verður eins og milljón króna blaðurfulltrúi atvinnurekenda. Gylfi Arnbjörnsson veit lítið um hagi þeirra, sem hafa 200 þúsund krónur á mánuði. Mótmæli síðustu vikna eru mótmæli auðstéttanna.