Þótt kannanir Gallup séu skástar, má ekki trúa þeim. Útkoman er rangtúlkuð. Svarhlutfall er bara 60%. Hin 40% eru ekki talin með. Það ýkir styrk flokka, þótt innbyrðis hlutföll þeirra geti verið rétt. En þau eru ekki einu sinni rétt, því að sérstaklega er spurt um stuðning við Sjálfstæðisflokkinn einan flokka. Allar tölur eru því of háar, einkum tölur Sjálfstæðisflokksins. Fjölmiðlar og einstaka þingmenn rangtúlka þessar kannanir, trúa hinum birtu tölum í blindni. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki 36% fylgi, heldur 15-20% og aðrir flokkar enn minna. Nóg er því plássið á Alþingi fyrir nýja flokka.