Niðurstaðan: Falleinkunn

Punktar

Ríkisstjórnin varð ekki við tilmælum Evrópuráðsins frá 2013 um aðgerðir gegn spillingu. Þvert á móti eflir hún spillingu. Gefur nú síðast fjármálaráðherra heimild til að einkavæða banka. Verk hennar og meirihluta hennar á þingi snúast flest um að rupla Ísland í þágu eigenda stjórnaflokkanna. Eins og hún keppist við að gera sem mest af sér á sem skemmstum tíma. Eins og hver dagur sé hennar síðasti. Tilmæli spillingarnefndar Evrópuráðsins snerust um forvarnir gegn spillingu alþingismanna, dómara og saksóknara. Að mati hennar hefur einungis verið staðið við 20% af þessum samþykktu tilmælum. Falleinkunn er niðurstaðan.