Andrés Jónsson segir ágætlega í bloggi sínu: “Það virðist sem klassískt “bunker-mentality” hafi skotið sér niður meðal íslenskra stjórnmálamanna og embættismanna. Aðallega stjórnmálamanna samt. Byrgið þeirra er við Austurvöll. Maður heyrir samræður þeirra í mötuneytinu endurómast í viðtölum sem þeir veita fjölmiðlum. “Það er svo mikil grimmd í samfélaginu”. “Enginn treystir neinum, þótt allir séu að vinna gott starf”. “Egill Helga er nú bara leiðtogi kverúlanta”. “Þið eruð ekki þjóðin”. “Það er ekki völ á neinu öðru hæfu fólki til að annast þessi störf”.” Þið þekkið pólitíska ruglið.