Náttúran í heiminum gekk af göflunum í fyrra. Steypiregn og skriður drápu yfir þúsund manns í Kína. Hundruð manna dóu í ofsafenginni hitabylgju í Rússlandi. Mörg hundruð manns dóu í verstu flóðum í sögu Pakistans. Flóð í Ástralíu eyðilögðu land á stærð við Frakkland og Þýzkaland. Í ár hefur þetta haldið áfram. Fellibylur í Bandaríkjunum drap hundrað manns í Joplin. Áður voru slík vandræði tæpast árlega, en núna eru þau mörg á ári. Þau staðfesta öfgar í andrúmsloftinu, sem trúlega eru að einhverju leyti af mannavöldum. Ekki er lengur hægt að útskýra þær sem hverjar aðrar sveiflur í veðurfari.