Í innsetningarræðunni um daginn setti George W. Bush Bandaríkjaforseti Íran efst á listann yfir óvini ríkisins. Hann neitar alveg að taka þátt í tilraunum Evrópu til að semja við Íran um kjarnorkuvopnamálið, segir þær ekki hafa neinn tilgang. Það getur verið rétt, en þá virðist stríð vera eini kostur hans í stöðunni. Þar fær hann engan stuðning erlendis, ekki einu sinni Bretlands. Árangur stríðsins verður lakari en í Írak. Elaine Sciolino segir í New York Times, að ráðamenn Evrópu fórni höndum og segist ekki skilja, hvað ríkisstjórn Bandaríkjann a sé að hugsa.
