Eitt er athugavert við innflutning á hálfunnum brauðum og kökum, sem eru hituð upp fyrir sölu. Fólki er ekki sagt frá. Það er eins og með mat úr erfðabreyttum hráefnum. Fólki er ekki sagt frá. Það er munurinn á Íslandi og öðrum löndum, þar sem borin er virðing fyrir fólki. Flestum kann að vera sama, en sumir hafa skoðanir. Sumir vilja ekki mat úr erfðabreyttu korni. Aðrir vilja mat, sem framleiddur er hér. Enn aðrir vilja aðeins innlent hráefni. Sumir hafna viðbættum sykri. Reglur um merkingar matvæla eiga að gera öllum kleift að velja og hafna. En Myllan vill leyna upplýsingum.
