Morales maður framtíðar

Punktar

Í Bólivíu stendur yfir uppgjör, sem var í Evrópu fyrir meira en tveimur öldum. Aðallinn í Bólivíu á allar eignir í landinu og allt land. Borgarar landsins eru hins vegar bláfátækir og margir við hungurmörk. En þeir hafa náð meirihluta á þingi og eiga forsetann, Evo Morales. Í fjórum sýslum landsins sættir aðallinn sig ekki við dreifingu auðs og lands. Þetta er versta tegund af aðli í heiminum, hefur aldrei sýnt borgurum landsins neina samúð. Auðvitað er aðallinn studdur af Bandaríkjunum, deiglu hins illa í heiminum. Vonandi tekst Morales að brjóta uppreisn þeirra á bak aftur.